Leita í fréttum mbl.is

Eilífðarhamingja:

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við þessum þremur hlutum 1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, Komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.

Megi þið eiga góða helgi Heart

               Kær kveðja Rannveig.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Mikið er þetta falleg kveðja hjá þér Rannveig mín,

gott innslag inn í helgina. Hafið það sem allra best. Mikið mun ég nú sakna ykkar. Besti og langflottasti starfsmannahópurinn í bænum!

Kristbjörg Þórisdóttir, 28.7.2007 kl. 01:31

2 identicon

Þetta er algjör snilldarkveðja!

sé ykkur í ágúst

Linda

Linda (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 17:41

3 identicon

Flott kveðja, gaman að lesa yfir

Guðný Jóns (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Starfsmannahópurinn
Starfsmannahópurinn

Flottasti starfsmannahópur bæjarins!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband